Ráðgjöf í upplýsingaöryggi

Upplýsingaöryggi þarf ekki
að vera flókið

ION Ráðgjöf hjálpar litlum og meðalstórum fyrirtækjum og sveitarfélögum að verja gögnin sín. Við byggjum á raunverulegri áhættu og höldum hlutunum einföldum.

Merki ION Ráðgjafar

Þjónusta

Það sem við gerum

Þrjár þjónustur sem geta unnið saman eða staðið einar. Allt er sniðið að þínum rekstri.

Áhættumat

Við greinum hvar áhættan liggur í rekstrinum og hjálpum þér að forgangsraða réttu hlutunum fyrst.

Innri úttektir

Við förum yfir öryggið hjá þér og skoðum hvað er raunverulega til staðar. Þú færð skýra mynd af því hvar þú stendur og hvað má bæta.

Stjórnkerfi upplýsingaöryggis

Við komum upp stjórnkerfi sem heldur utan um öryggið til lengri tíma. Það á að vera einfalt í notkun og ekki íþyngjandi.

Aðferð

Okkar nálgun er áhættumiðuð

Þetta þarf ekki að vera flókið, það þarf bara að vera rétt forgangsraðað. Við vinnum í fjórum skrefum.

  1. Hlustun

    Við byrjum á að skilja reksturinn þinn, fólkið og það sem þú hefur áhyggjur af.

  2. Greining

    Við kortleggjum áhættuna og finnum hvar mestu verðmætin og veikleikarnir liggja.

  3. Forgangsröðun

    Saman ákveðum við hvað skiptir mestu og gerum raunhæfa áætlun sem hægt er að fylgja.

  4. Framkvæmd

    Við vinnum lausnirnar með þér og fylgjum þeim eftir í framkvæmd.

Áskriftarþjónusta fyrir sveitarfélög

Öruggara nám

Þjónusta á sviði menntatækni sem byggir á öryggisvinnu ION Ráðgjafar. Kynntu þér hana nánar á sérstakri vefsíðu.

Skoða oruggaranam.is
Jón Kristinn Ragnarsson

Um okkur

Manneskja á bak við öryggið

ION Ráðgjöf var stofnuð í janúar 2019 af Jóni Kristni Ragnarssyni. Jón Kristinn hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum tengdum upplýsingaöryggi síðan 2011.

Áherslan er á að tala mannamál frekar en tæknihrognamál og að finna lausn sem hentar þér.

„Besta lausnin er sjaldnast sú flóknasta.“

Hafa samband

Stendurðu frammi fyrir verkefni? Tölum saman

Hafir þú spurningar um þjónustuna eða standir frammi fyrir verkefni sem erfitt er að leysa, máttu endilega hafa samband.